Afladagbók

Notkunarskilmálar Afladagbókar RSF

1. gr.

Notkunargjald

Fyrir aðgang að hugbúnaði og þjónustulausn Afladagbókar RSF (hér eftir: hugbúnaðurinn) greiðir notandi mánaðargjald í samræmi við gjaldskrá RSF á hverjum tíma. Gegn greiðslu mánaðargjalds fær notandi aðgang að hugbúnaði RSF og er því ætlað að standa straum af notkun, rekstri, þjónustu og hýsingu. Reikningar fyrir Afladagbók skulu vera í samræmi við þjónustuleið notanda og gefnir út samkvæmt gildandi reglum. Greiði notandi ekki reikninga á eindaga áskilur RSF sér rétt til að innheimta hæstu mögulegu dráttarvexti frá gjalddaga.

2. gr.

Breytingar á gjaldskrá

Gjaldskrá Afladagbókar RSF er bundin vísitölu neysluverðs og er hún uppfærð til samræmis við vísitöluna í lok hvers ársfjórðungs. Geri RSF breytingar á gjaldskrá sinni umfram vísitölubreytingar skal það tilkynnt notendum með minnst 30 daga fyrirvara.

3. gr.

Ábyrgð

RSF ber enga ábyrgð gagnvart notendum og starfsemi þeirra. RSF gefur aðeins kost á hugbúnaði sem er ætlaður til að einfalda skil á afladagbók. Misbrestur notenda á lagaskyldum sínum er RSF óviðkomandi.

4. gr.

Notkun

Notendum er aðeins heimilt að nota hugbúnað RSF með hefðbundnum hætti. Hugbúnaðurinn er hugverk sem RSF einn hefur heimild til að ráðstafa.